Harður árekstur á Vogavegi
Harður árekstur varð milli tveggja bifreiða á Vogavegi á fimmta tímanum í dag.
Tveir fólksbílar sem komu hvor úr sinni áttinni skullu þar saman og skemmdust mikið. Beita þurfti klippum til að koma ökumanni annarar bifreiðarinnar út og var sá fluttur á HSS til frekari skoðunar.
Viðkomandi var ekki talinn alvarlega slasaður. Báðar bifreiðarnar voru fluttar á brot með dráttarbíl.
Tildrög eru óljós en vegna hita var talverð tjörublæðing á veginum.
VF-mynd/Hilmar Bragi