Harður árekstur á Vesturgötu í gærkvöldi
Harður árekstur varð á Vesturgötu í Keflavík á áttunda tímanum í gærkvöldi. Bifreið var bakkað úr bílastæði í veg fyrir aðra bifreið sem ók upp Vesturgötuna.Engin slys urðu á fólki en eignatón varð töluvert. Önnur bifreiðin er mikið skemmd eftir áreksturinn.
Íbúi við Vesturgötuna sagði það þurfa að vera næsta verk bæjarins að setja hraðahindrun á götuna, þar sem hraðinn sé oft á tíðum mikill.
Íbúi við Vesturgötuna sagði það þurfa að vera næsta verk bæjarins að setja hraðahindrun á götuna, þar sem hraðinn sé oft á tíðum mikill.