Þriðjudagur 20. september 2005 kl. 11:28
Harður árekstur á Garðvegi í morgun

Harður árekstur varð á Garðvegi í morgun á móts við Golfskálann í Leiru. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Keflavík. Skullu þar saman fólksbíll og sendibíll. Mikill vatnselgur var á veginum og flaut annar bíllinn upp með fyrrgreindum afleiðingum. Einn var í hvorum bíl en meiðsli uðru ekki alvarleg.