Föstudagur 8. desember 2006 kl. 14:20
Harður árekstur á Fitjum

Mjög harður 2ja bíla árekstur var nú fyrir stundu við Fitjar í Njarðvík. Einn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar en er ekki mikið slasaður. Aðkoman var ljót en báðir bílarnir eru mikið skemmdir og líkast til ónýtir. Ekki er vitað um tildrög slyssins á þessari stundu en lögregla er enn á vettvangi.
VF-myndir: Ellert Grétarsson.