Harður árekstur
Harður árekstur tveggja bifreiða varð á mótum Kirkjuvegar og Vesturgötu um kvöldmatarleytið á föstudag. Ekki urðu alvarleg slys á fólki.Bílarnir voru báðir taldir óökuhæfir eftir áreksturinn og því fluttir á brott með dráttarbifreið. Bílstjórarnir kenndu til í hálsi og voru aumir eftir áreksturinn en ætluðu að fara sjálfir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til að láta meta meiðslin.