Bygg
Bygg

Fréttir

Hannes um Heimi: „Gersamlega úr tengslum við umhverfi sitt“
Föstudagur 2. nóvember 2007 kl. 13:19

Hannes um Heimi: „Gersamlega úr tengslum við umhverfi sitt“

„Það er undrunarvert að að félag ungra sjálfstæðismann í Reykjanesbæ skuli virkilega vera svo gersamlega úr tengslum við umhverfi sitt að það skuli koma þeim á óvart að bæði íbúar Reykjanesbæjar, svo og Reykjanesskagans skuli ræða um framtíð Hitaveitunnar, og að það sé gert af tilfinningum.

Það er alveg ljóst að staða málefna Hitaveitu Suðurnesja og Geysis Green Energy eru orðin mjög samofin, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr og úr þeirri flækju þarf að leysa. Það hefur aldrei staðið til að HS færi í útrásarverkefni, þótt Geysir Green sem hluthafi hafi það að sínu meginmarkmiði,“ segir Hannes Friðriksson úbúi í Reykjanesbæ um ályktun sem Heimir, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ,  sendi frá sér í morgun. Hannes hefur sem kunnugt er hafið undirskriftasöfnun þar sem hann vill gefa íbúum svæðisins kost að að segja hug sinn.

Hannes, sem einnig er sjálfstæðismaður, sendi frá sér orðsendingu nú í hádeginu þar sem hann segir ennfremur:

„Það er mér alveg ljóst að ég undirritaður kastaði fram hugmynd um hvort mögulegt væri að Reykjanesbær leysti til sín meirihlutann til að tryggja að hann yrði áfram í samfélagslegri eigu, en eftir umræðu um það mál skil að það er ekki gerlegt, og útilokað að Reykjanesbær skuldsetji sig meira, í þessum tilgangi  eftir því sem mér er sagt.  Þá er að leita annara leiða. Það er líka ljóst að þau 5. samningsmarkmið sem kynnt hafa verið eru ekki í anda þeirrar umræðu sem á sér stað meðal kjósenda.

Það þykir betra þegar menn semja ályktanir sem slíkar að þeir kynni sér málið til hlýtar, og hefðu Heimismenn gert það hefðu þeir fundið fljótlega út að Reykjanesbær hefur nú þegar selt 5% af sínum hlut til að tryggja að bæði OR og GGE hefðu ráðandi hluti í fyrirtækinu. Það hefur alla tíð verið ljóst að sú nálgun að lausn  sem valin hefur verið hingað til hefur eingöngu verið borinn undir fámennan hóp manna og aldrei verið borinn undir kjósendur. Það er alveg ljóst í mínum huga, að áður en menn setja sér markmið um lausnir á svo stóru máli sem hér um ræðir, er betra að vita hver vilji almennings á svæðinu er. Vonandi kemur hann í ljós, með þeirri undirskriftarsöfnun sem í gangi er.“
 
                                                       
 Virðingarfyllst
Hannes Friðriksson
www.askorun2007.is
Bílakjarninn
Bílakjarninn