Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Fréttir

Hanna Björg Konráðsdóttir tekur við sem deildarstjóri raforkueftirlits Orkustofunnar
Mánudagur 11. apríl 2022 kl. 10:52

Hanna Björg Konráðsdóttir tekur við sem deildarstjóri raforkueftirlits Orkustofunnar

Hanna Björg Konráðsdóttir tók nýverið við sem deildarstjóri raforkueftirlits Orkustofunnar.  Hanna Björg hefur frá árinu 2018 verið lögfræðingur raforkueftirlits Orkustofnunar og meðal annars borið ábyrgð á eftirliti með framkvæmd raforkulaga og breytingum í laga- og reglugerðarumhverfi og tilskipunum EES á sviði orkumála.

Áður sinnti hún fjölbreyttum verkefnum innan Orkustofnunar, s.s. sem lögfræðingur OS, verkefnastjóri innlendra og erlendra orku- og auðlindaverkefna hjá GEORG, Geothermal research cluster, og þar áður sem lögfræðingur verkefna Uppbyggingarsjóðs EFTA og sem rekstrarstjóri.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Hanna Björg hefur sinnt kennslu við Háskólann á Bifröst, meðal annars á sviði evrópsks orkuréttar auðlinda, umhverfisréttar, auðlindaréttar og stjórnsýsluréttar. Þá hefur hún flutt ýmis erindi er tengjast lagaumgjörð orkugeirans.

Hanna Björg er með meistarapróf í lögfræði og BS próf í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst og BS í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun, fjármál og markaðsfræði frá Háskólanum á Akureyri.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25