Handverkfærum stolið
Brotist var inn nýbyggingu við Nesvelli síðustu nótt þaðan sem stolið var einhverju af handverkfærum. Ekki er vitað hver eða hverjir voru að verki. Þá voru fjórir ökumenn kærðir í gær fyrir of hraðan akstur.
Lögreglumenn hafa síðustu daga verið að skoða reiðhjól við grunnskóla hér á Suðurnesjum. Eins og allir vita þurfa reiðhjólin að vera í lagi og að sjálfsögðu eiga allir að vera með reiðhjólahjálma.