Handtóku ferðasjúkan barþjón í Leifsstöð
Lögreglan á Suðurnesjum handtók í síðustu viku ferðasjúkan barþjón frá Bretlandi sem hafði bókað níu flugferðir til Íslands á netinu og greitt með stolnum greiðslukortanúmerum. Greint er frá þessu á visir.is nú áðan.
Konstantin Deniss Fokin, 26 ára gamall breskur barþjónn, sem fæddur er í Eistlandi, var nú fyrir stundu dæmdur í fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness. Dóminn fær hann fyrir að hafa bókað níu flugferðir til Íslands á netinu með stolnum greiðslukortanúmerum. Bretinn var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku og hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan. Hann játaði brot sín bæði við yfirheyrslu og í dómi.
Fokin, sem er fæddur í Eistlandi komst yfir greiðslukortanúmerin við störf á barnum í London. Hann pantaði sér alls níu flugferðir til Kaupmannahafnar, Stokkhólms og Osló með viðkomu á Íslandi.
Auk þess þarf barþjóninn Fokin að greiða Icelandair skaðabætur að upphæð 1,3 milljónir.
Undanfarna viku hefur lögreglan á Suðurnesjum varist allra frétta af málinu vegna rannsóknarhgsmuna en Fokin mun hafa komið við sögu áður í fjársvikamálum í Englandi.