Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Handtekinn tvisvar sinnum á þremur klukkustundum
Þriðjudagur 11. október 2016 kl. 11:21

Handtekinn tvisvar sinnum á þremur klukkustundum

- Talinn hafa stolið þremur hálsmenum

Lögreglan á Suðurnesjum færði nýverið karlmann á þrítugsaldri tvisvar sinnum í fangaklefa á þriggja klukkustunda tímabili. Fyrst var hann handtekinn klukkan rúmlega níu að morgni til vegna glannalegs aksturslags. Reyndist hann þá vera undir áhrifum áfengis og fíkniefna við aksturinn.  Hann var einnig sviptur ökuréttindum.

Um þremur klukkustundum síðar barst lögreglu tilkynning um karlmann í annarlegu ástandi sem var að reyna að stela vörum úr verslun ÁTVR og skartgripaverslun í umdæminu. Þar reyndist vera á ferðinni sami maður og skömmu áður hafði verið látinn laus vegna vímuakstursins. Hann var grunaður um að hafa stolið þremur hálsmenum úr skartgripaversluninni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024