Fréttir

Handtekinn með 25 E-pillur og 40 gr. af hassi
Laugardagur 18. nóvember 2006 kl. 13:07

Handtekinn með 25 E-pillur og 40 gr. af hassi

Lögreglan í Keflavík handtók í nótt konu grunaða um vörslu og sölu fíkniefna. Við leit í bifreið hennar fundust 25 ætlaðar E-pillur í söluumbúðum auk þess sem um 40 gr. af ætluðu hassi fannst á heimili hennar.
Um miðnættið ók ökumaður fólksbifreiðar á ljósastaur. Bifreiðin skemmdist mikið og var fjarlægð af vettvangi með dráttarbifreið. Ökumaðurinn slasaðist ekki en er grunaður um akstur undir áhrifum lyfja og eða fíkniefna.
Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar