HSS
HSS

Fréttir

Handtekinn eftir vímuakstur
Þriðjudagur 2. október 2012 kl. 07:10

Handtekinn eftir vímuakstur

Lögreglan á Suðurnesjum handtók um helgina rúmlega tvítugan ökumann þar sem hann var grunaður um ölvun við akstur. Hann sat í ökumannssæti með bílinn í gangi, en drap á honum þegar lögregla kom á vettvang.

Hann kvaðst ekki hafa verið að aka bílnum, en breytti síðan framburði sínum eftir að á lögreglustöð var komið, og játaði brot sitt. Rökstuddur grunur er um að maðurinn hafi einnig verið undir áhrifum ýmissa fíkniefna.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Maðurinn hafði áður verið sviptur ökuréttindum ævilangt.