Handtekinn af sérsveitarmönnum eftir árás með hamri
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út til að aðstoða lögregluna á Suðurnesjum eftir að ráðist var á mann með hamri í Reykjanesbæ um helgina. Átök tveggja manna í gleðskap enduðu með því að annar þeirra tók upp hamar og beitti honum í áflogum þeirra á milli. Frá þessu var greint á mbl.is
Fór gerandinn af vettvangi í kjölfarið og aðstoðaði sérsveitin við handtöku hans, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum. Þolandinn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar og var útskrifaður samdægurs. Áverkar reyndust ekki eins alvarlegir og talið var í upphafi.