Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Handtekin í hasssöluferð: Ungbarn í fangaklefa með móður
Þriðjudagur 22. júlí 2008 kl. 22:44

Handtekin í hasssöluferð: Ungbarn í fangaklefa með móður


Karlmaður og kona á þrítugsaldri voru handtekin í Reykjanesbæ sl. nótt með 180 grömm af hassi í plötum, ætlað til sölu. Fólkið var í bíl þegar lögreglan hafði afskipti af því og var fjögurra mánaða gamalt barn parsins í bílnum. Morgunblaðið á Netinu, mbl. is greinir frá þessu.


Segir í frétt mbl.is að lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði bílinn við reglubundið eftirlit. Karlmaðurinn var þá undir stýri og reyndist hann undir áhrifum vímuefna. Við leit í bílnum fundust síðan hassplöturnar.


Parið, ásamt barninu, gisti fangageymslur lögreglu um nóttina. Voru barnaverndaryfirvöld látin vita í kjölfarið. Málið, sem er nokkuð óvenjulegt, er litið mjög alvarlegum augum af lögreglu. Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu.


Samkvæmt upplýsingum frá Barnaverndarstofu er talið forsvaranlegt í ákveðnum tilvikum að börn dvelji hjá móður sinni í fangaklefa. Erfitt sé að skilja ung börn frá móður, sérstaklega ef þau eru á brjósti. Þá séu aðstæður oft þannig að ekki sé hægt kalla út einstaklinga til aðstoðar seint að nóttu til að sinna barninu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

www.mbl.is