Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Föstudagur 12. nóvember 1999 kl. 22:47

HANDSAMAÐI ÞJÓF

Kaupmaðurinn í raftækjaversluninni Sónar við Hafnargötu í Keflavík handsamaði bíræfinn þjóf uppá sitt einsdæmi s.l. þriðjudag. Maður á milli þrítugs og fertugs kom inní búðina, hrifsaði myndbandstæki úr hillu verslunarinnar og tók síðan á rás út úr búðinni með tækið í fanginu. Kauðmaðurinn fótfrái elti þjófinn uppi og tók af honum myndbandstækið. Ljóst er að herra Fingralangur hefur setið yfir dagskrá Ríkissjónvarpsins það kvöldið.
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100