HSS
HSS

Fréttir

Handrukkari handtekinn í Reykjanesbæ
Mánudagur 29. september 2003 kl. 10:51

Handrukkari handtekinn í Reykjanesbæ

Handrukkari vopnaður kylfu var handtekinn fyrir utan heimili í Reykjanesbæ um helgina þar sem hann var mættur til að innheimta fíkniefnaskuld. Lögreglunni í Keflavík barst tilkynning um málið og voru lögreglumenn sendir strax á staðinn og var maðurinn handtekinn og færður til yfirheyrslu. Ekki hafði komið til átaka þegar lögregla kom á staðinn. Karl Hermannsson yfirlögregluþjónn í Keflavík sagði í samtali við Víkurfréttir að maðurinn sem handtekinn var sé þekktur og hafi komið áður við sögu í fíkniefnamálum. Að sögn Karls er fremur sjaldgæft að svona mál séu tilkynnt til lögreglu þar sem fólk sé óttaslegið um hefndaraðgerðir. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni í Keflavík þar sem það fer í hefðbundinn farveg.

 

VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson: Kylfan sem handrukkarinn var með við innheimtu skuldar í Reykjanesbæ um helgina. Á kylfuna hefur verið skrifað „Ambientador Permanente“.

Bílakjarninn
Bílakjarninn