Handfærarúllum stolið í Sandgerðishöfn
Tveimur handfærarúllum var nýverið stolið úr bát sem lá við smábátahöfnina í Sandgerði. Handfærarúllurnar eru af gerðinni DNG 6000i. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið og biður þá sem hafa orðið varir grunsamlegra mannaferða á ofangreindu svæði síðastliðið fimmtudagskvöld að koma á framfæri upplýsingum í síma lögreglunnar 420 1700.