Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Hámarksútsvar í Vogum
Sunnudagur 10. janúar 2016 kl. 12:00

Hámarksútsvar í Vogum

– ekki slegið af við uppbyggingu innviða sveitarfélagsins

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt að miða við að útsvarshlutfall fyrir árið 2016 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,48% af útsvarsstofni, að viðbættri hækkun sem kveðið verður á um í lögum um tekjustofna sveitarfélaga á grundvelli samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um endurmat á yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga.

Bæjarstjórn Voga hefur jafnframt samþykkt samhljóða fjárhagsáætlun fyrir árin 2016 til 2019 ásamt tillögu að gjaldskrá sveitarfélagsins fyrir nýhafið ár.

Á þessu ári er gert ráð fyrir að skatttekjur verði 537 mkr., framlög jöfnunarsjóðs séu 280 mkr. og aðrar tekjur sveitarfélagsins 100 mkr.

Heildargjöld samstæðunnar án fjármagnsliða eru áætluð 906 mkr. Þau skiptast þannig að laun og launatengd gjöld séu 551 mkr., annar rekstrarkostnaður 311 mkr. og afskriftir: 44 m.kr. Fjármunatekjur og fjármunagjöld eru 47 mkr.

Fulltrúar E-listans í bæjarstjórn Voga lögðu fram svohljóðandi bókun:
„Nýsamþykkt er metnaðarfull fjárhagsáætlun þar sem, þrátt fyrir þröngan fjárhag, er ekki slegið af við uppbyggingu innviða sveitarfélagsins. Áfram er haldið við endurgerð gatna, og langt er síðan jafn vel hefur verið í lagt í viðhald fasteigna sveitarfélagsins. Á næsta ári mun reyna áfram á forstöðumenn stofnana sveitarfélagsins að halda starfsemi innan heimilda eins og þeir hafa gert á líðandi ári, og mun hér eftir sem hingað til verða virkt eftirlit með því að allur rekstur verði innan heimilda. Mikil vinna hefur farið í fjárhagsáætlunargerðina og hefur bæjarráð ásamt bæjarstjóra borið hitann og þungann af þeirri vinnu. Bæjarráð hefur verið samstíga við þessa vinnu og viljum við í E-listanum þakka fulltrúa D-lista og áheyrnarfulltrúa L-lista í bæjarráði fyrir afar gott samstarf við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.”

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024