Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Halldór nýr forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
Föstudagur 28. júní 2013 kl. 14:16

Halldór nýr forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

Halldór Jónsson hefur verið ráðinn forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja frá 1. júlí næstkomandi til fimm ára, að undangengnu mati hæfnisnefndar. Alls voru sautján umsækjendur um embættið.

Niðurstaða hæfnisnefndar var að tveir úr hópi umsækjendanna væru hæfastir til að gegna embættinu og var Halldór annar þeirra. Hæfnisnefndin er skipuð samkvæmt 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu. Í henni sitja þrír fulltrúar með þekkingu á rekstri, starfsmannamálum, stjórnsýslu og heilbrigðisþjónustu. Engan má skipta til starfa nema hæfnisnefndin hafi talið hann hæfan.

Halldór Jónsson hefur starfað á Sjúkrahúsinu á Akureyri frá árinu 1984 þar sem hann gegndi fyrst stöðu skrifstofustjóra, síðar framkvæmdastjóra og lengst af stöðu forstjóra, að undanskildum árunum 1990–1994 þegar hann var bæjarstjóri á Akureyri. Síðastliðið ár var Halldór í námsleyfi í Noregi við Akershus-háskólasjúkrahúsið og víðar, þar sem hann kynnti sér stefnumótun, stjórnun og rekstur sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana og einnig stefnumótun, skipulag og framkvæmd heilbrigðisþjónustu. Halldór er viðskiptafræðingur að mennt, fæddur árið 1950.

Aðrir umsækjendur um embætti forstjóra voru:

Bjarni Kr. Grímsson
Daði Einarsson
Drífa Sigfúsdóttir
Emil Sigurjónsson
Friðjón Einarsson
Guðný Birna Guðmundsdóttir
Helga Birna Ingimundardóttir
Héðinn Sigurðsson
Herdís Gunnarsdóttir
Ingimar Einarsson
Kristján Sigurðsson
Kristján Sverrisson
Ólafur Sigurðsson
Valbjörn Steingrímsson
Þorvaldur Helgi Auðunsson
Þór Sigþórsson

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024