Halla sæmd Menningarverðlaunum Grindavíkur
Grindvíkingurinn Halla María Svansdóttir hlýtur Menningarverðlaun Grindavíkur nú í ár fyrir framlag sitt til bæjarins. Veitingastaður hennar, Hjá Höllu, hefur notið gríðarlegra vinsælda í Grindavík og hefur hún síðustu ár haft jákvæð áhrif á matarhefð í Grindavík.
Halla hefur reynt að nýta sér hreinleika íslenskra matvæla í matargerð og lífræna ræktun. Þá hefur henni tekist að byggja upp orðspor og eftirspurn eftir sinni framleiðslu sem oft inniheldur lykilhráefni úr Grindavík. Höllu er umhugað um bæjarfélagið sitt og hefur hennar frumkvöðlastarf skilað sér í auknum tekjum og atvinnutækifærum í Grindavík, er fram kemur á heimasíðu Grindavíkur.
Menningarverðlaun 2019 verða afhent við setningu Menningarviku þann 9. mars næstkomandi.