Halla leitar að atvinnuhúsnæði í Reykjanesbæ
„Þá er komið að því. Við "hjá höllu" erum að leita okkur að atvinnuhúsnæði til leigu í 1-2 ár,“ skrifar veitingakonan Halla María Svansdóttir á vegginn hjá fyrirtækinu sínu.
„Ég hef fulla trú á því að við förum aftur heim en á meðan við vitum EKKERT þurfum við aðstöðu til að halda áfram með reksturinn. Ég er svo sammála, það þarf að vera raunsær þó það sé ekki auðvelt. Ég er búin að gefa allt svigrúm sem ég tel vera hægt að gefa frá minni hálfu til þess að bíða eftir góðum svörum en ég held að við verðum að bíða áfram,“ skrifar Halla jafnframt.
Halla segist trúa því að framtíðin sé björt fyrir Grindavík en hvenær sú framtíð byrjar er óljóst. „Á meðan er ég ekki tilbúin að sleppa tökum og ætla að halda áfram og vera tilbúin að fara til baka þegar tími gefst og er réttur fyrir hvern og einn. Það er líka mikilvægt að allir skilji og taki tillit til ákvarðana sem hver og einn tekur fyrir sig og sína. Það er búið að sanna það fyrir löngu að ef þú hugsar ekki um sjálfan þig þá gerir það enginn fyrir þig.“
Hjá höllu vantar vinnslueldhús með góðu borðplássi og góðu kæli- og frysti plássi. Halla segir að þau „hjá höllu“ eru til í að vera áfram í Reykjanesbæ og líka á höfuðborgarsvæðinu.
Halla notar tækifærið og þakkar fjölskyldunni í Skólamat, Axel, Fanný og Nonna. Skólamatur skaut skjólshúsi yfir fyrirtækið strax eftir fyrstu rýmingu Grindavíkur þann 10. nóvember.
„Þið eruð FRÁBÆR í alla staði. Ég veit ekki hvað við værum án ykkur. Það eru engin orð sem ná yfir það sem þið hafið gert fyrir okkur en ég verð ykkur ævinlega þakklát.“