Hálka leikur ökumenn grátt
Hálka hefur leikið Suðurnesjamenn grátt í umferðinni í dag. Tvívegis hafa bifreiðar hafnað á ljósastraurum við Reykjanesbraut og þá hafa verið pústrar innanbæjar í Reykjanesbæ. Vegagerðin varaði í morgun við flughálku á Grindavíkurvegi en skyndilegt frost í morgunsárið varð til þess að vegurinn varð sem gler.
Ekki er vitað til þess að slys hafi orðið á fólki en eignatjón er nokkuð.