Hálka á Reykjanesbraut

Nokkrir tugir farþega Iceland Express áttu bókað flug til Lundúna klukkan fjögur í gær. Fólkinu hafði verið lofað flugi með morgunvél. Margir ákváðu því að halda kyrru fyrir í flugstöðinni í nótt enda færðin um Reykjanesbraut vond. Samkvæmt nýjustu upplýsingum er stefnt að því að fljúga til London eftir hádegi.
Mynd: Hægt er að fylgjast með færð á vegum á vef Vegagerðinnar. Svona leit kortið út kl. 9:30 og eins og sjá má er færðin á suðvesturhorni landsins allt annað en góð.