Þriðjudagur 3. mars 2020 kl. 07:20
Hálf milljón í nýjan fjarskiptabúnað björgunarsveita
Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur samþykkt að styrkja björgunarsveitirnar í Suðurnesjabæ, Ægi í Garði og Sigurvon í Sandgerði, um samtals hálfa milljón króna vegna kaupa á VHF talstöðvum sem nauðsynlegar eru til að tryggja samskipti ef til straumleysis kemur.