Mánudagur 26. maí 2003 kl. 11:45
Haldið ykkur frá Helguvík!

Það er alls ekki æskilegt að fólk sé á ferli í Helguvík þessa dagana, enda stórhættulegt að vera þar á ferli. Blaðamaður og ljósmyndari Víkurfrétta fengu illt auga þar sem þeir voru að flækjast á smábíl innan um risastóra trukka fulla af stórgrýti. Þegar blaðamaðurinn spurði síðan ljósmyndarann hvort þeir ættu ekki að skella sér útaf Helguvíkurveginum og út á klappirnar til að taka mynd yfir svæðið, sagði ljósmyndarinn: „Þetta er sprengjusvæði“. Sem betur fer hlustaði blaðamaðurinn á félaga sinn með myndavélina, því þeir voru vart komnir í skjól við nýja sorpeyðingarstöð þegar jörðin nötraði. Klappirnar voru sprengdar í loft upp!Sett hafa verið upp viðvörunarskilti við Helguvíkurveginn sem banna alla óviðkomandi umferð. Þar er jafnframt varað við vinnusvæðinu og sprengingum í námum. Fólk er því hvatt til að halda sig frá svæðinu og fylgjast frekar með framkvæmdunum hér á vf.is. Svo fremi sem við verðum ekki sprengdir í loft upp á ferðum okkar um Helguvík, þá munum við flytja fréttir og sýna myndir af stórframkvæmdum í Helguvík.
Myndin: Skilti við Helguvíkurveginn.