Bygg
Bygg

Fréttir

Halda úti sérstakri vöktun fyrir viðbragðsaðila vegna Grindavíkur
Mánudagur 13. nóvember 2023 kl. 13:37

Halda úti sérstakri vöktun fyrir viðbragðsaðila vegna Grindavíkur

Vakt Veðurstofunnar einbeitir sér sérstaklega að svæðinu í og við Grindavík og heldur úti sérstakri vöktun fyrir viðbragðsaðila sem sinna aðgerðum á staðnum. Þetta kemur fram í tilkynningu Veðurstofunnar.

Það er mat Veðurstofunnar að virknin í og við Grindavík sé nánast óbreytt frá því í gær. Fylgst er gaumgæfilega með öllum mælakerfum í rauntíma, sér í lagi við Grindavík, sem gætu bent til breytinga á stöðunni. ​

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Enn mælist hæg minnkandi aflögun við Grindavík. ​Gliðnun er mest við miðju gangsins við Sundhnúk þar sem megin uppstreymissvæði kviku er talið vera.​