Halda kynningarfund vegna starfsleyfis Thorsil ehf
	Umhverfisstofnun mun halda kynningarfund vegna starfsleyfisumsóknar Thorsil ehf í næstu viku. Stofnunin er nú með í auglýsingu tillögu að starfsleyfi fyrir fyrirtækið til að framleiða allt að 110.000 af hrákísli á ári. Reksturinn á að fara fram í Helguvík.
	
	Tillaga að starfsleyfi er auglýst  á tímabilinu 28. maí til 23. júlí 2015. Auglýsta tillögu má finna á vef Umhverfisstofnunar www.ust.is
	
	Kynningarfundurinn fer fram í Duushúsum í Reykjanesbæ þann 24. júní næstkomandi kl: 17:00 og eru íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta, segir í tilkynningu stofnunarinnar.

 
	
				

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				