Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Hagsmunir HS Orku skaðist ekki af viðskiptum ríkisins og Reykjanesbæjar
Mánudagur 19. desember 2011 kl. 10:10

Hagsmunir HS Orku skaðist ekki af viðskiptum ríkisins og Reykjanesbæjar

Þann 11. nóvember sl. undirrituðu Reykjanesbær og Ríkissjóður Íslands samning um sölu Reykjanesbæjar á landi og auðlindum á Reykjanesi til ríkissjóðs. Í samræmi við ákvæði sölusamnings frá 17. júlí 2009, þegar HS Orka seldi Reykjanesbæ þetta land og auðlind, þá voru þessi viðskipti nú háð samþykki HS Orku.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

HS Orka hefur nú gengið frá samningi við Reykjanesbæ og undirritað viljayfirlýsingu við ríkissjóð sem tryggja að hagsmunir fyrirtækisins skaðist ekki vegna þessara viðskipta.

Málsaðilar munu nú hefja samningaviðræður um fyrirkomulag á nýtingu jarðhitaréttinda á umræddu svæði og er stefnt að því að samningum verði lokið eigi síðar en 1. júlí 2012, segir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku.