Hagkaup opnar sérvöruverslun á Fitjum í vor
 Hagkaup hafa ákveðið að opna nýja tegund verslana í Reykjanesbæ og Borgarnesi.  Verslanirnar munu bjóða uppá sérvörur Hagkaupa ásamt úrvali snyrtivara.  Hagkaup munu leitast við að bjóða gott úrval bæði í fatnaði sem og í leikföngum, heimilisvöru, skemmti og afþreyingarefni.

Með tilkomu Hagkaupa mun framboð sérvöru á þessum markaðssvæðum aukast til muna. Íbúar á Vesturlandi og í Reykjanesbæ munu því geta notið þess vöruúrvals sem Hagkaup bjóða uppá á góðu verði til hagsbóta fyrir íbúa þessa landsvæða.
Framkvæmdir eru hafnar og er stefnt á að verslanirnar muni opna í byrjun vors.