Hafsteinn Guðmundsson sæmdur riddarakrossi
Forseti Íslands sæmdi í gær ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Meðal þeirra var Hafsteinn Guðmundsson fyrrverandi forstöðumaður hjá Keflavík, hlaut hann riddarakross fyrir forystu á vettvangi íþróttastarfs á Suðurnesjum og á landsvísu.
Hafsteinn Guðmundsson lék fjóra landsleiki í knattspyrnu á árunum 1946-1951, var stjórnarmaður í KSÍ 1968-1971, landsliðsnefndarmaður og síðar landsliðseinvaldur eins og það var kallað, og formaður ÍBK til fjölda ára. Hafsteinn var sæmdur heiðurskrossi KSÍ á 50 ára afmæli sínu í október 1973, en heiðurskrossinn er æðsta heiðursmerki KSÍ og veitist aðeins þeim sem unnið hafa knattspyrnuíþróttinni ómetanlegt gagn.
Mynd MBL: Hafsteinn við hlið forseta Íslands, þriðji frá vinstri.