Hafsteinn Guðmundsson látinn
Hafsteinn Guðmundsson, fyrrverandi forstöðumaður hjá Keflavíkurbæ og oft nefndur guðfaðir knattspyrnunnar í Keflavík lést í gærkvöldi, 89 ára að aldri
Hafsteinn var m.a. formaður Knattspyrnuráðs Keflavíkur í mörg ár og var í forystu þegar uppgangur knattspyrnunnar í Keflavík var sem mestur. Hann varð síðar landsliðseinvaldur Íslands í knattspyrnu. Hann lék fjóra landsleiki, var stjórnarmaður KSÍ í fjögur ár og landsliðsnefndarmaður áður en hann varð einvaldur. Hafsteinn var m.a. sæmdur heiðurskrossi KSÍ á fimmtugsafmæli sínu 1973 sem er æðsta heiðursviðurkenning KSÍ. Hann var sæmdur gullmerki Keflavíkur árið 2008. Þá Hafsteinn var sæmdur riddarakrossi af forseta Íslands um síðustu áramót, heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu, fyrir forystu á vettvangi íþróttastarfs á Suðurnesjum og víðar.