Föstudagur 12. nóvember 2004 kl. 09:25
Hafnaði á ljósastaur í mikilli hálku
Bifreið hafnaði á ljósastaur í gærkvöldi á Reykjanesbraut vestan við Vogastapa. Ástæður slyssins má rekja til mikillar hálku og voru ökumaður og farþegi flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Bifreiðin var nokkuð skemmd og var flutt á brott með dráttarbifreið.