Fréttir

Hafna-þvottabjörninn krufinn á Keldum
Fimmtudagur 22. mars 2018 kl. 12:51

Hafna-þvottabjörninn krufinn á Keldum

Þvottabjörn fannst við Hafnir í Reykjanesbæ í byrjun vikunnar og hefur Matvælastofnun sent dýrið í sýnatöku og krufningu til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

Rannsakað verður hvort þvottabjörninn hafi borið dýrasjúkdóma með sér til landsins en hundur sem komst í snertingu við hann hefur verið settur í einangrun á heimili sínu, ásamt því að sýni hafa verið tekin úr honum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ekki er vitað hvernig þvottabjörninn barst til landsins, en innflutningur á þvottabjörnum er með öllu óheimill til landsins