Bygg
Bygg

Fréttir

Hafna leiðréttingu á rekstrarframlagi til leikskóla í Garði
Leikskólinn Gefnarborg í Garði. VF-mynd: Hilmar Bragi
Fimmtudagur 18. janúar 2018 kl. 06:00

Hafna leiðréttingu á rekstrarframlagi til leikskóla í Garði

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs hefur samþykkt samhljóða að hafna ósk rekstraraðila leikskólans Gefnarborgar í Garði um leiðréttingu á rekstrarframlagi. Rekstraraðilinn óskaði eftir annars vegar afturvirkri leiðréttingu vegna annars rekstrarkostnaðar, sem hefur ekki hækkað til samræmis við hækkun neysluverðsvísitölu. Hins vegar vegna aukins kostnaðar við rekstur á eldhúsi.

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða á síðasta fundi að hafna erindinu, með tilvísun í grein í samningi um rekstur leikskólans. Ekki er fallist á leiðréttingu vegna breytingar á vísitölu neysluverðs fyrir það árabil sem óskað er eftir og ekki hafa orðið verulegar kostnaðarhækkanir undanfarin tvö ár. Varðandi aukinn kostnað við rekstur á eldhúsi, er ekki fallist á að greiða þann aukna kostnað, enda á ábyrgð rekstraraðila.
Jónína Magnúsdóttir vék af fundinum undir þessum lið vegna vanhæfni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn