Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Hafði í hótunum við sýslumann - ætlaði að snúa aftur með byssu
Föstudagur 23. mars 2012 kl. 18:37

Hafði í hótunum við sýslumann - ætlaði að snúa aftur með byssu



Maður á miðjum aldri kom á skrifstofu sýslumanns um klukkan hálf tvö í dag og hafði í hótunum við sýslumanninn. Meðal annars hótaði maðurinn að snúa aftur á skrifstofuna vopnaður byssu .„Þetta var kært til lögreglu,“ sagði Þórólfur Halldórsson, sýslumaður í Keflavík í samtali við Vísir.is, en Þórólfur segir að maðurinn hafi skuldað opinber gjöld sem sýslumaðurinn innheimtir almennt ekki.

Að sögn Þórólfs hafði hann aldrei séð manninn áður, en hann yfirgaf sýslumannsskrifstofunar af sjálfsdáðum. Það er búið að finna út deili á manninum og lögreglan rannsakar málið.

Spurður hvort embættinu hefði verið hótað með sambærilegum hætti áður, svararði Þórólfur því til að það hefði vissulega komið fyrir að menn hefðu hækkað róminn, en starfsfólki hefði ekki verið hótað. Aðspurður hvort gæsla verði aukin um sýslumannsembættið segist Þórólfur ekki vilja tjá sig um það.

Sjá frétt á Vísi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024