Hafði aldrei öðlast ökuréttindi
Á ellefta tímanum í gærkvöldi stöðvuðu lögreglumenn ökumann bifreiðar í Keflavík. Hann er grunaður um ölvun við akstur og þá hefur hann aldrei öðlast ökuréttindi.
Þá var ökumaður stöðvaður á Hringbrautinni í Keflavík í gær og var hann ekki í öryggisbelti. Með honum í för voru þrír táningar og var engin af þeim í belti heldur. Ökumaður mun eiga von á sekt fyrir athæfið.