Bygg
Bygg

Fréttir

Hafa sagt upp þjónustusamningi við Iceland Express
Þriðjudagur 29. mars 2011 kl. 16:19

Hafa sagt upp þjónustusamningi við Iceland Express

Airport Associates á Keflavíkurflugvelli hafa sagt upp þjónustusamningi sínum við Iceland Express um flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli. Sigþór Kristinn Skúlason, framkvæmdastjóri Airport Associates, staðfesti þetta í samtali við Víkurfréttir. Hann sagði að fyrirtækin hafi ekki náð samningum sín á milli og því hafi mál þróast á þennan hátt. Uppsögnin tekur gildi um mánaðamótin maí/júní nk.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Sigþór sagði að þessi breyting myndi þýða að ekki yrðu ráðnir sumarstarfsmenn til fyrirtækisins eins og til stóð. Fyrirtækið auglýsti á dögunum eftir sumarfólki en getur við breyttar forsendur ekki ráðið það fólk til vinnu.

Búist er við stærsta ferðasumri sögunnar á Keflavíkurflugvelli í sumar en fjöldi erlendra flugfélaga mun fljúga til Íslands í sumar með ferðamenn. Sigþór segir að Airport Associates sé með samninga við nokkur af þessum flugfélögum, t.a.m. Delta Airlines, Air Berlin og Germanwings.