Kadeco
Kadeco

Fréttir

Hafa merkt 250 hús í Garði og Sandgerði
Miðvikudagur 26. ágúst 2026 kl. 08:47

Hafa merkt 250 hús í Garði og Sandgerði

Nú er verið að merkja síðustu húsin í Sandgerði í átaki sem félagsskapurinn Merkir menn hóf fyrir nokkrum árum. Verkefnið hófst í Garði með því að merkja hús sem eru byggð fyrir árið 1960. Húsin eru merkt nafni hússins og hverjir fyrstu ábúendur voru. Alls hafa Merkir menn merkt um 250 hús í Garði og Sandgerði.

Þegar lokið var við að merkja húsin í Garði var farið yfir í Sandgerði og haldið áfram með verkefnið þar. Í báðum byggðakjörnum Suðurnesjabæjar hefur verið reynt að fá sem upprunalegasta mynd af viðkomandi húsi. Það hefur reyndar ekki alltaf tekist.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Skiltin eru upplýsandi og mikilvæg fyrir söguna þar sem í eina tíð höfðu öll hús sitt nafn en í dag tilheyra húsin bara götum og götunúmeri.

Myndin að neðan var tekin þegar Baldurshagi var merktur. Baldurshaga þekkja flestir í dag sem Suðurgötu 1 í Sandgerði. Að ofan má svo sjá Merka menn við höfuðstöðvar hópsins í Oddshúsum í Garði með skilti Fuglavíkur.




Bílakjarninn
Bílakjarninn