Hafa greitt upp hálfan milljarð vegna FS
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) hefur greitt upp lán upp á hálfan milljarð króna. Lánið var til tíu ára og var notað til að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Á árinu 2003 seldi SSS skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500 millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti. Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánsins og sambandið sér um að innheimta hjá hverju þeirra hlutdeild í afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga og standa skil á þeim til skuldareigenda. Þann 30.júní 2013 námu eftirstöðvar lánsins 30,3 millj. kr. og eftirstöðvar þess voru í fullum skilum. Í samræmi við skilmála lánsins var það greitt upp þann 1. ágúst 2013.
Tekjuafgangur SSS á tímabilinu 1. janúar – 30. júní 2013 nam um 6,6 milljónum kr. og eigið fé þann 30. júní 2013 nam 41,9 milljónum kr. samkvæmt árshlutareikningi sem nú hefur verið birtur á vef SSS.
Starfsemi sambandsins var í megninatriðum í samræmi við áætlanir og greiðslur sveitarfélaganna til sambandsins vegna fjármögnunarverkefna þess voru í skilum.