HSS
HSS

Fréttir

Hafa áhyggjur af slæmum frágangi
Fimmtudagur 24. júlí 2008 kl. 15:34

Hafa áhyggjur af slæmum frágangi

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Gamalt fiskvinnsluhús við Framnesveg í Keflavík hefur talsvert látið á sjá eftir að vinnslu var hætt í húsunum fyrir fáeinum misserum. Klæðningar hafa verið rifnar af útveggjum og þaki.

Íbúi í nágrenni við húsið hefur miklar áhyggjur af ástandinu. Hann hefur bæði verið í sambandi við lögreglu og bæjaryfirvöld vegna málsins. Síðasta vetur voru björgunarsveitir tíðir gestir við húsið að hefta fok. Í samtali við Víkurfréttir sagði nágranninn að hann hafi stundum séð til mannaferða seint á kvöldin og nóttunni við húsið þar sem menn hafa farið á brott með timbur og járnplötur. Nú sé ástandið á húsinu þannig að hann kvíði næsta vetri, því mikil fokhætta sé frá húsinu en stutt er í íbúðarhúsnæði í næsta nágrenni.



Þá séu ungmenni farin að venja komur sínar í húsið en áhöld til fíkniefnaneyslu hafa fundist við húsið.

Myndir: Hilmar Bragi Bárðarson