Hættum að reykja diskurinn seldur á næstu dögum
Nú stendur yfir hvatningarátakið Hættum að reykja. Einn liður átaksins er útgáfa á geisladiski þar sem landsþekktir listamenn á borð við Birgitta Haukdal söngkona í Írafári, Jóhanna Guðrún, Hreimur söngvari í Land og synir og Jónsi söngvari Í svörtum fötum syngja lög Jóhanns G. Jóhannssonar.Nemendafélög grunnskólanna hlutu hvert að gjöf frá Reykjanesbæ 280 eintökaf disknum en á honum má finna lög eins og "Tóm tjara" og "Svæla, svæla,reykjarsvæla". Nemendur 10. bekkjar skólanna munu nú á næstu dögum ganga í hús í sínu skólahverfi og selja diskinn á 1000 kr. Vonandi taka íbúar bæjarins vel á móti krökkunum því afrakstur sölunnar mun renna í ferðasjóð 10. bekkinga og til frekari eflingar félagsstarf í grunnskólunum.
Tómstundaleiðbeinendur grunnskólanna
Tómstundaleiðbeinendur grunnskólanna