Fréttir

Hættulegt rör á reki vestan Sandgerðis
Föstudagur 24. maí 2019 kl. 16:08

Hættulegt rör á reki vestan Sandgerðis

Áhöfn flutningaskips sem var á leið frá landinu tilkynnti varðskipinu Þór um rekald á sjó vestan við Sandgerði í vikunni. Áhöfn varðskipsins brást hratt og örugglega við beiðninni og fjarlægði rekaldið úr sjónum. Frá þessu er greint á fésbókarsíðu Landhelgisgæslunnar.
 
Þarna var á ferðinni plaströr með stáli á endunum sem hefði geta reynst smærri skipum hættulegt. 
 
Eitt af lögbundnu hlutverkum Landhelgisgæslunnar er „að tilkynna um, fjarlægja eða gera skaðlaus reköld, tundurdufl, sprengjur eða aðra hluti sem sjófarendum getur stafað hætta af auk sprengjueyðingar á landi.“
 
Myndin er af fésbókarsíðu Landhelgisgæslunnar.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024