Hættuleg merkjablys finnast á Reykjanesi
Landhelgisgæslan varar við hættulegum merkjablysum sem hafa fundist víða á Reykjanesi og Snæfellsnesi að undanförnu, en sprengjudeild gæslunnar hefur haft afskipti af nokkrum slíkum.
Blys sem þessi eru mikið eru notuð af herjum og björgunaraðilum til sjós, bæði til æfinga og við björgun. Fram kemur í tilkynningu Landhelgisgæslunnar að blysin innihalda fosfór sem getur verið hættulegt vegna sjálfsíkveikju sem verður þegar efnið þornar og kemst í snertingu við súrefni, hvort sem blysið hefur verið notað eða ekki.
Fosfór brennur hratt og getur valdið miklum eldsvoða sé það geymt nálægt eldfimum efnum og gefur jafnframt frá sér eitraðan reyk sem er mjög hættulegur. Finnist svona blys á víðavangi ber að merkja staðinn og tilkynna það til Landhelgisgæslunnar eða lögreglu.
Ekki skal snerta blysið heldur reyna að lesa merkingar sem kunna að vera á því og taka niður upplýsingar um helstu mál, lengd og breidd, ef mögulegt er. Ef viðkomandi hefur myndavél í fórum sínum er gagnlegt að fá myndir sendar til sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar.
Ef blysið finnst úti á sjó ber að geyma það utandyra fjarri öllum eldfimum efnum. Ekki skal geyma þessi blys innandyra.undir nokkrum kringumstæðum.
Frekari upplýsingar veitir sprengjudeild Landhelgisgæslunnar í síma 5452100. Einnig eru upplýsingar undir fyrirsögninni sprengjudeild á heimasíðu Landhelgisgæslunnar á slóðinni: http://www.lhg.is
Mynd/Landhelgisgæslan