Hættir eftir 32 ár í bæjarstjórn
Síðasti fundur bæjarstjórnar Garðs á kjörtímabilinu var haldinn í fyrradag. Þar voru Ingimundi Þ. Guðnasyni færðar sérstakar þakkir en hann hefur setið í hreppsnefndum og bæjarstjórn sveitarfélagsins í 32 ár.
Ingimundur hefur setið í fjölmörgum stjórnum og nefndum og sinnt trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélagið. „Störfum sínum fyrir bæinn hefur hann sinnt af hugsjón, samviskusemi, festu og fórnfýsi og ítrekar bæjarstjórn þakkir og velfarnaðaróskir til Ingimundar,“ segir í bókun bæjarstjórnar. Jafnframt voru bæjarfulltrúum, starfsmönnum bæjarins og Garðbúum fyrir þakkir samstarfið á kjörtímabilinu.
VFmynd/Hilmar Bragi – Ingimundur í ræðupúlti á bæjarstjórnarfundi í Garði.