Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Hætta áfram metin mjög mikil innan Grindavíkur
Frá Grindavík. VF/Ísak Finnbogason
Fimmtudagur 18. janúar 2024 kl. 13:51

Hætta áfram metin mjög mikil innan Grindavíkur

Landris heldur áfram við Svartsengi

Eins og greint var frá í fréttum í gær þá eru áfram skýr merki um landris undir Svartsengi og enn er of snemmt að fullyrða um hraðann á landrisinu þar sem svo stutt er síðan gaus á svæðinu. Verið er að meta gögn frá GPS mælum til að fá heildarmat á stöðuna. Aflögun virðist þó vera svipuð og eftir eldgosið 18. desember, segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Um 200 jarðskjálftar hafa mælst við kvikuganginn síðan í gær, sá stærsti 1,4 að stærð. Tæplega 70 smáskjálftar frá miðnætti. Þetta eru færri skjálftar en mældust deginum áður. Veðrið hefur haft áhrif síðustu daga en samt er búið að draga úr fjölda skjálfta.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Áfram er hætta mjög mikil innan Grindavíkur í tengslum við sprungur og að jarðvegur hrynji ofan í þær.