Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Hætta að skoða alla skó á Keflavíkurflugvelli
Fimmtudagur 3. janúar 2013 kl. 07:07

Hætta að skoða alla skó á Keflavíkurflugvelli

Eftirlit með fótabúnaði flugfarþega hér á landi hefur verið óvenju strangt en nú verður tekið upp samskonar kerfi og þekkist í nágrannalöndunum.

Nú þurfa ekki lengur allir farþegar á Keflavíkurflugvelli að fara úr skóm við vopnaleit líkt og tíðkast hefur um árabil. En líkt og Túristi hefur margsinnis bent þá var eftirlitið hér á landi einstakt því í Evrópu láta öryggisverðir handahófkennt eftirlit með skóm duga og í Bandaríkjunum þurfa börn og eldri borgarar ekki úr skóm.

Í kjölfar umfjöllunar Túrista gaf Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, það út að reglurnar hér á landi yrðu endurskoðaðar. Niðurstaðan liggur nú fyrir því samkvæmt nýju svari Isavia, rekstaraðila flugvallarins, til Túrista þá verður hér eftir hætt að skoða skó allra farþega og slembiúrtak látið duga.

Skóeftirlitið mest skapraunin

Það verða sennilega margir sem gleðjast yfir þessari stefnubreytingu því samkvæmt lesendakönnun síðunnar Turisti.is þótti þremur af hverjum fjórum eftirlitið hér á landi of strangt. Niðurstöður bandarískrar rannsóknar sýna jafnframt að ekkert öryggisatriði pirrar farþega jafn mikið og skóskönnunin (sjá grein Túrista).
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024