Föstudagur 14. desember 2007 kl. 16:02
Hæstiréttur staðfestir farbannsúrskurð í Vesturgötumáli
Hæstiréttur staðfesti í dag synjun Héraðsdóms Reykjaness á kröfu lögreglunnar í Keflavík um að Pólverjinn sem grunaður er um að hafa orðið valdur að dauða Kristinns Veigars Sigurðssonar yrði áfram í gæsluvarðhaldi.
Hann hefur hins vegar verið úrskurðaður í farbann til 8. janúar 2008.