Bygg
Bygg

Fréttir

Hæsta hlutfall ófaglærðra kennara er á Suðurnesjum og Vestfjörðum
Mánudagur 8. ágúst 2016 kl. 16:37

Hæsta hlutfall ófaglærðra kennara er á Suðurnesjum og Vestfjörðum

Menntað fólk sækir í betur launuð störf

Hæsta hlutfall ófaglærðra kennara í grunnskólum landsins er á Vestfjörðum og Suðurnesjum. Ófaglærðum kennurum fjölgar talsvert um þessar mundir líkt og undanfarin ár. Á tveimur landsvæðum var hlutfall kennara án réttinda hærra en 10%, á Vestfjörðum 16,9% og á Suðurnesjum 14,5%, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti á dögunum.

„Hér á Suðurnesjum erum við auðvitað með mjög stóran vinnustað sem Leifsstöð er og á meðan ferðaþjónustan blómstrar og völlurinn stækkar og stækkar virðist alltaf vera pláss fyrir vel launuð störf þar sem menntun og hæfni kennara nýtist mjög vel,“ segir Helgi Arnarson fræðslustjóri Reykjanesbæjar í samtali við Vísi. Þar tekur hann fram að kennarar sæki í önnur vel launuð störf þessi misserin og fyrir vikið sé erfitt að manna kennarastöður með menntuðu fólki í faginu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Á árunum 1998–2008 var hlutfall starfsfólks við kennslu í grunnskólum landsins, sem var án kennsluréttinda, á bilinu 13–20%. Hlutfallið lækkaði eftir hrun um allt land og fór lægst í 4,1% haustið 2012. Síðan 2012 hefur kennurum án kennsluréttinda fjölgað ár frá ári og voru 5,4% haustið 2015. Þá var 261 starfsmaður við kennslu án kennsluréttinda og hafði fjölgað úr 216 haustið 2014.