Hælisleitendur draga umsóknir til baka
Við húsleit Útlendingastofnunar hjá rúmlega 40 hælisleitendum í Reykjanesbæ þann 11. september síðastliðinn fundust gögn um að tæplega 10 manns hefðu verið við störf hér á landi um lengri eða skemmri tíma samtímis því sem þeir fengu frítt uppihald og fæði. Nokkrir hafa dregið til baka umsóknir sínar um hæli í kjölfar húsleitarinnar. 24stundir og mbl.is greina frá þessu.
Haft er eftir Hauki Guðmundssyni, forstjóra Útlendingastofnunar að hjá fjórum hælisleitendum frá Albaníu hafi fundist verulegt fé og var þeim tilkynnt að ekki yrði áfram greiddur framfærslukostnaður fyrir þá. Þeir hafa dregið umsóknir sínar til baka. Í ljós hafi komið að þeir eru allir með gild dvalarleyfi í Grikklandi.
Á einum hælisleitanda fannst sænskur refsidómur vegna alvarlegrar líkamsárásar hans.
„Þessi hælisleitandi hefur eftir aðgerðina ranglega haldið því fram í fjölmiðlum að lagt hafi verið hald á fé hans og hann hefur freistað þess að knýja á um greiðslu þess, meðal annars með því að lýsa yfir hungurverkfalli. Þessar yfirlýsingar eru ekki í samræmi við skýrslur lögreglu og lögmanns sem fylgdist með aðgerðinni fyrir hönd hælisleitenda og gætti hagsmuna þeirra,“ er haft eftir Hauki.
„Þarna eru margir sem eru að reyna að leita skjóls en aðrir sem eru einfaldlega að misnota þetta úrræði. Við getum hins vegar ekki látið sem þarna sé allt með felldu þegar við höfum sterkar vísbendingar um að svo sé ekki, “ segir Haukur ennfremur í samtali við 24stundir.
Frétt á mbl.is hér