HSS
HSS

Fréttir

Hælisleitandi grunaður um morð
Þriðjudagur 4. október 2005 kl. 13:23

Hælisleitandi grunaður um morð

Albanskur karlmaður sem bað um hæli hér á landi er grunaður um aðild að morði í Grikklandi. Maðurinn framvísaði fölsuðum skilríkjum við komuna til landsins. Ríkisútvarpið greinir frá þessu.

Albaninn kom hingað til lands fyrir hálfum mánuði. Hann framvísaði vegabréfi sem reyndist falsað og þegar það kom í ljós bað hann um hæli. Mál hans fór þá í ákveðinn farveg hjá yfirvöldum en á meðan var maðurinn vistaður hjá Félagsþjónustunni í Reykjanesbæ ásamt öðrum hælisleitendum. Beiðni Albanans um hæli var síðan synjað.

Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli gaf út ákæru á hendur manninum fyrir að framvísa fölsuðum ferðaskilríkjum og við undirbúning málsins grennslaðist lögregla fyrir um bakgrunn hans í gegnum alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra. Í ljós kom að maðurinn er grunaður um aðild að morði í Grikklandi sem framið var fyrir tæpu ári og hefur þarlend lögregla verulegan áhuga á að ná tali af honum.

Maðurinn er nú kominn bak við lás og slá eftir að Héraðsdómur Reykjaness dæmdi hann á föstudaginn var í 45 daga fangelsi fyrir brot á lögum um útlendinga.

Eyjólfur Kristjánsson, fulltrúi hjá Sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli segir það áhyggjuefni að menn sem koma hingað til lands með þessum hætti og lítið er vitað um geti komist inn í landið og í raun verið frjálsir ferða sinna í nokkurn tíma, einungis með því að biðja um hæli. Því megi velta fyrir sér hvort ekki sé rétt að hefta ferðafrelsi þeirra uns fyrir liggja staðfestar upplýsingar um hver viðkomandi er og lögregluyfirvöld hafi komið athugasemdum sínum á framfæri við dómsmálaráðuneytið. Mál Albanans sé ekkert einsdæmi.

http://www.ruv.is
Bílakjarninn
Bílakjarninn